ANDAÐU INN

VELKOMINN TIL VALHALLA

GESÚS

GUÐMUNDUR EMIL HERCULES JÓHANNSSON

ÞJÁLFARI · SAUNUMEISTARI · KULDAÞJÁLFARI · ÁHRIFAVALDUR

BYRJA ÞJÁLFUN
HLUSTA Á ÁHRIFAVALD
„2020 fann ég í saununni að ég myrti covid veiruna í miðju saunu sessioni.“
GEMIL 20:20
„Lífið er sauna og sauna er lífið.“
SÁLMUR 11:11
„Ég trúi ekki á boð og bönn. Þetta þarf allt að vera í hófi.“
HÓFSEMI 7:7
„Saunan boostar testann.“
TESTAMENTIÐ 9:9
„Allir menn deyja en ekki allir menn lifa.“
VÍKINGAR VAKNA 1:1
I

GUSA

FYRSTA FRUMEFNIÐ · ELDUR

VALHALLA VISION SAUNUGUSA

15 mínútur af alvöru hita, út í kuldann, jafnvel sjóinn, svo aftur inn. Alvöru purge. Fyrir einstaklinga og hópa. Í boði GESÚS.

I
ELDUR
15:00
II
KULDI
02:00
III
ELDUR
15:00
IV
SJÓRINN
V
ELDUR
15:00

SAMTALS 45+ MÍNÚTUR Í ELDINUM · ALVÖRU PURGE

EINKAGUSA

Fyrir hópa, fyrirtæki og liðsheildir sem þurfa að brenna eitthvað burt saman. GESÚS kemur með eldinn.

Þú sendir fyrirspurn, GESÚS svarar með dagsetningum og verði, persónulega.

II

ÍSINN

ANNAÐ FRUMEFNIÐ · ÍS

Sjósund og kuldaþjálfun með manni sem hefur farið í kaldan sjó og saunu 3 til 7 sinnum í viku í 6 ár. Kuldinn er ekki óvinurinn. Kuldinn er kennarinn.

6
ár af eldi og ís, hverja einustu viku
3–7×
í viku, sauna og kaldur sjór
vellíðan, að hans sögn, og hann lýgur ekki
III

ÞJÁLFUN

ÞRIÐJA FRUMEFNIÐ · JÁRN

Enginn öfgakúr. Engin boð og bönn. Bara hóf, agi og járn, frá manni sem hætti að vera ræfill, ákvað að vakna klukkan sex á hverjum morgni þar til líkaminn hlýddi, og hefur ekki stoppað síðan.

Fyrir þau sem vilja komast í betra form og ná alhliða árangri. Ekki skyndilausn. Lífsstíll.

HVAÐ ÞÚ FÆRÐ

APP

Þú færð aðgang að appi og svarar spurningalista þar inni. Út frá því geri ég prógram og næringaplan með næringargildum, og við setjum markmið saman.

VIKULEG CHECK-IN

Þú sendir inn myndir og mælingar. Við förum yfir vikuna, hvernig gékk og hvort eitthvað megi fara betur, og uppfærum prógramið eftir þörfum.

STÖÐUG SAMSKIPTI

Þú þarft ekki að bíða eftir check-in til að heyra í mér. Ég er til staðar að svara spurningum hvenær sem er og um hvað sem er.

ÆFINGAPLAN

Prógram sérsniðið þér og þínum markmiðum, með tracker til að skrá allt niður og myndböndum af æfingunum þar sem ég fer yfir hreyfinguna og útskýri allt sjálfur.

MATARPLAN

Ég set upp matarplan með fleiri en einum valkosti á hverja máltíð og kenni þér að skipta út X fyrir Y. Þú getur í raun borðað hvað sem er, planið er sniðið að þínu lífi og þinni rútínu, ekki öfugt.

ÆFINGAMYNDBÖND

Sendu mér myndbönd af þér að æfa. Ég fer yfir tækni og kem með púnkta um hvað má bæta.

INNRA NET

Aðgangur að efni um æfingar, næringu, uppskriftir og fróðleik sem er stöðugt að uppfærast.

30–60 MÍN SAMTAL

Hvert tímabil byrjar með símtali eða viðtali, 30–60 mínútur, þar sem við förum yfir stöðuna þína og setjum stefnuna. Ekki bara plan á blaði, samtal við mann sem hlustar.

VELDU ÞÍNA LEIÐ Í JÁRNIÐ

Öll þrjú planið innihalda: app, æfingaplan, matarplan, vikuleg check-in, stöðug samskipti, innra net, 30–60 mín samtal í upphafi, og video call eða símtal 1–2x í mánuði. Viljir þú meira, ein mæling og spjall hjá mér augliti til auglitis þar sem við förum yfir planið saman, er það líka í boði. Ég er með þér alla leið, ekki bara fyrsta mánuðinn.

1 MÁNUÐUR

SAMI PAKKINN

70.000 kr / mán

3 MÁNUÐIR

3 MÁNAÐA SKULDBINDING

Sama pakki, lægra verð fyrir þau sem eru tilbúin að fara alla leið. Meiri tími, meiri árangur, minni greiðsla á mánuði.

45.000 kr / mán, greitt mánaðarlega

6 MÁNUÐIR

6 MÁNAÐA SKULDBINDING

Allt fæst hér: sami pakki, lengsta skuldbindingin, lægsta verðið. Fyrir þau sem eru komin til að vera, og ég er með þeim alla leið.

35.000 kr / mán, greitt mánaðarlega

STAKT ÆFINGAPLAN

ÁN FASTRAR ÞJÁLFUNAR

Ekki tilbúinn í fullt prógram? Fáðu sérsniðið æfingakerfi án fastrar þjálfunar utan um það. Ég geri planið út frá spurningalista og þú færð nýtt kerfi í hverjum mánuði. Í appi með myndböndum þar sem þú skráir þyngdir og framvindu, eða sem PDF með myndböndum og útskýringum, hvort sem hentar þér betur.

14.500 kr / mán

1 ON 1 · Í GYMMINU

AUGLITI TIL AUGLITIS

Einkaþjálfun þar sem ég er í salnum með þér, ekki bara á skjánum. Sami agi, sama hóf, sama járn.

verð eftir samtali

HÓPÞJÁLFUN · WORLD CLASS

SÖFNUÐURINN HITTIST

2–8 saman í World Class, orka sem jaðrar við messu, sami agi og einstaklingsþjálfunin, bara fleiri í eldinum með þér.

verð eftir samtali
„Ég ákvað bara að hætta að vera ræfill.“
JÁRNBRÉFIÐ 6:00

GESÚS les hverja einustu umsókn. Þú sækir um. Ég svara, fyrr en þig grunar.

ALGENGAR SPURNINGAR

Hvernig virkar greiðslan?
Þú velur pakka og fyllir út formið. Ég sendi þér svo reikning beint í heimabankann þinn, enga kortagreiðslu, ekkert flókið. Öll planið eru greidd mánaðarlega, því lengri skuldbinding því lægra mánaðarverð. Engin falin gjöld, engin sjálfvirk framlenging án þess að þú vitir af því.
Get ég hætt í miðju plani?
1 mánaðar áskrift má segja upp hvenær sem er fyrir næsta greiðsludag. 3 og 6 mánaða pakkar eru bindandi skuldbinding fyrir allt tímabilið sem þú velur í upphafi, þú greiðir mánaðarlega en ert skuldbundinn/skuldbundin til að greiða alla mánuðina, og það er ekki hægt að hætta í miðjum klíðum eða fá endurgreitt. Ástæðan fyrir lægra verði á lengri pökkum er einmitt skuldbindingin, veldu því lengdina sem þú veist að þú stendur við.
Hvað ef ég er ekki með aðgang að tækjasal?
Segðu mér frá því í spurningalistanum. Planið er sniðið að þér, heima, í ræktinni, eða úti í náttúrunni ef því er að skipta.
Hversu oft heyri ég í þér?
Vikuleg check-in, stöðug skilaboð hvenær sem er, og video call eða símtal 1–2x í mánuði. Viljir þú meira, mæling og spjall augliti til auglitis, er það líka í boði.
Hentar þetta byrjendum?
Já. Öll hreyfing á planinu fylgir myndbandi frá mér sjálfum þar sem ég sýni og útskýri. Þú þarft ekki að kunna neitt fyrirfram, bara að mæta.
Þarf ég að fylgja mataráætluninni upp á gramm?
Nei. Þú færð fleiri en einn valkost á hverja máltíð og lærir að skipta út X fyrir Y. Þetta þarf allt að vera í hófi.
Hvað ef ég vil bara staka æfingaplanið?
Þá er staka æfingaplanið fyrir þig, nýtt kerfi í hverjum mánuði, án vikulegra check-in eða stöðugra samskipta.

SAMSKIPTI

Góð samskipti eru ekki auka-hlutur hér, þau eru planið.

Ég er til staðar.

Þú þarft ekki að bíða eftir vikulegu check-in til að heyra í mér. Sendu skilaboð hvenær sem er, um hvað sem er.

Planið er ekki heilagt.

Fyrstu vikurnar getum við þurft að aðlaga það, að þínum líkama, þínum degi, þínum sal. Það er ekki bilun, það er vinnan.

Þú færð val, ekki fyrirmæli.

Fleiri en einn valkostur á hverja máltíð. Þú lærir að skipta út X fyrir Y svo lengi sem næringargildin standast, þá getur þú í raun borðað hvað sem er.

Ég svara í appinu.

Öll samskipti fara í gegnum appið svo ekkert týnist og þú hefur alltaf yfirsýn yfir planið, skilaboðin og framvinduna á einum stað.

Engin boð og bönn.

Ekkert öfgaplan, engin skyndilausn. Hóf, agi og járn, á þínum hraða.

VÍKINGAR VAKNA

UPPSTIGNINGIN · GEMIL

ÁHRIFAVALDUR

Platan. Sjö sálmar frá hjartanu, fullir af krafti og jákvæðum áhrifum úr ljósi og kærleika. BLESSAÐUR. sexybeast. LENGI LIFI FRIÐURINN.

"YOU ARE THE POWER AND THE GLORY FOREVER FOR ETERNITY"